Auðvelt í uppsetningu og að taka niður fyrir veturinn!
Bryggjur á vötn
Bryggjur frá CanadaDocks henta vel við íslenskar aðstæður þar sem bryggjur eru settar út á vorin og teknar inn á haustin. Þær eru modulbyggðar. Einingar eru 1.25 x 2.5m afgreiddar sem heild með stólpum, samtengjum og dekki allt eftir óskum. Uppsetning er auðveld enda fylgja góðar leiðbeiningar. Lengd á stólpum er miðuð við dýpt við bakka.
Bryggjunum má raða saman á smekklegan hátt og í takt við það sem hentar á hverjum stað fyrir sig. Það er töluvert úrval af aukahlutum sem hægt er að setja á bryggjurnar til stuðla að auknu öryggi sem og að skapa rétta stemninguna.
Bryggjurnar eru meðfærilegar og því auðvelt að ganga frá þeim að hausti, hver fleki er tveggja manna tak.
Flotdokkur fyrir sæketti (JetSki)
CanadaDocks bjóða einnig upp á flotdokkur fyrir sæketti. Það auðveldar aðgengi að farartækinu sem og það er skilið eftir á þurru eftir notkun.
Sýnishorn til á lager.
Aukahlutir CanadaDocks
Eigum til á lager
Mynd | Lýsing |
---|---|
Polli (Kruss) „T“ fellur niður þegar polli er ekki í notkun. |
|
Ljós – (sólardrifið) | |
Hornstólpi, stillanlegur eftir flóðhæð | |
Hornfender. Hvítur og/ eða ljósbrúnn. Festiskrúfur fylgja með | |
Kantlisti – hvítur eða ljósbrúnn. | |
Föst millitengi | |
Liðtengi | |
Keðjufesta | |
Stólpar – framlenging. 0.2 og 0.5m sett – 4 stk og/eða stakir |
|
Hornstólpi, stillanlegur eftir flóðhæð |
Hafðu samband í dag
Við er með vakt allan sólarhringinn í síma 8635699
og getum brugðist við með mjög stuttum fyrirvara.