ROLEC
Rolec tenglastólpar
Þjónustuaðili okkar fyrir tenglastólpa er Rolec Services á Englandi: Rolec er sérhæft fyrirtæki með vörur og þjónustu fyrir hafnir. Tenglastólparnir eru af mörgum gerðum en við höfum að mestu selt „CASSIC“ stólpa með 16- og/eða 32amp (bæði ein- og þriggja fasa) tenglum. Tenglar eru læsanlegir með öryggi, lekaliða sem grunnfrágang. Einnig má fá stólpana með orkumælum „kwH“ en undanfarin ár hafa flestir stólpa verið afgreiddir með mælum. Ytra birgði er almennt úr hethúðuðu stáli en ryðfrítt seltuvarið stál er einnig fánanlegt.

Vörulýsing
Rolec EVO Smart EV Charger er snjöll og öflug hleðslustöð fyrir rafbíla sem hentar heimilum, fyrirtækjum, sameignum og opinberum aðilum. Hún er hönnuð til veggfestingar og þolir íslenskar veðuraðstæður. Lausnin hentar vel í fjölbýlishúsum og bílageymslum þar sem margir notendur deila hleðslukerfi og þörf er á skýrri aðgangsstýringu og mælingu á notkun.
Helstu eiginleikar:
• Hleðslugeta allt að 22 kW, fer eftir uppsetningu
• Tengist WiFi eða 4G fyrir fjarstýringu og eftirlit
• Samhæf við snjallforrit til að fylgjast með notkun og kostnaði
• Hægt að stilla aðgang með RFID korti
• Hentar fyrir bæði einka- og sameiginlega notkun
• Styður álagsstýringu sem dreifir rafmagni milli notenda í sameign
EVO Smart styður álagsstýringu sem dreifir rafmagni á hagkvæman hátt og dregur úr toppálagi. Hún er góð lausn fyrir þá sem vilja örugga, hagkvæma og lausn sem stenst kröfur til framtíðar.

Hafðu samband í dag
Við er með vakt allan sólarhringinn í síma 8635699
og getum brugðist við með mjög stuttum fyrirvara.





